21.12.1977
Sameinað þing: 35. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1709 í B-deild Alþingistíðinda. (1412)
137. mál, frestun á fundum Alþingis
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Hér var hæstv. forsrh. rétt í þessari andránni að lýsa yfir því 21. des., í aðsogi að jólafríi þm., að hér á hv. Alþ. sé hvorki staður né stund til þess að fjalla um vandamálin sem blasa við þessari þjóð. Hann notaði tækifærið til að túlka ugg þm. stjórnarandstöðunnar um það, að hæstv. ríkisstj. kynni að nota það hlé, sem gera á á þingstörfum, til þess að beita á hæpinn hátt valdi sínu til setningar brbl. Hann leyfði sér að túlka þennan ugg stjórnarandstöðunnar á þann hátt, að hún treysti ríkisstj. til þess að leysa efnahagsvandann og þann meginvanda, sem steðjar að þjóðinni, núna á einum mánuði í jólafríi. Sannleikurinn er náttúrlega sá, að við höfum fordæmi tif að benda á með hvaða hætti þessi ríkisstj., sem nú situr, hefur gert ákaflega margt rangt á tiltölulega skömmum tíma. Það er einmitt þetta sem við óttumst að kunni að gerast í þinghléinu.
Hv. þm. Gylfi Þ. Gíslason drap áðan á fordæmi sem séu fyrir því, að ríkisstj. gefi út brbl. í þinghléi, stjórni með tilskipunum í þinghléi í skjóli skammdegismyrkursins, — fordæmi sem hverju sinni hafa raunverulega talist til eindæma og þótt slæm og gefist illa. Samráðið, sem hv. þm. talaði um að eðlilegt væri að hafa við stjórnarandstöðu, á ekkert skylt við þingræði og mundi sjálfsagt enginn þm. taka sér í munn í því sambandi nema sá sem einna lengst og af mestri samsekt allra íslenskra stjórnmálamanna hefur tekið þátt í þess háttar ólýðræðislegum og óþingræðislegum vinnubrögðum.
Ef vandi atvinnuveganna er svo aðkallandi sem hv. þm. Gylfi Þ. Gíslason taldi og hæstv. forsrh. hefur hér lýst, þá hafa alþm. alls engan rétt til þess að taka sér nú mánaðarfrí frá störfum á fullum launum og ágætislaunum, heldur ber alþm. skylda til að halda áfram störfum og láta sér nægja álíka frí og aðrir landsmenn taka sér um jólin. Alþm. er nefnilega núna kringra að sitja hér í þessum stólum áfram og sinna þeim störfum, sem þeir taka laun fyrir, en fela ráðh., slíkir sem þeir eru, þess háttar forsjá, sem hæstv. forsrh, gaf í skyn áðan að þeir vildu taka sér, og þess háttar umboð sem hv. þm. Gylfi Þ. Gíslason gaf þeim áðan.