21.12.1977
Sameinað þing: 35. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1718 í B-deild Alþingistíðinda. (1417)

1. mál, fjárlög 1978

Oddur Ólafsson:

Herra forseti. Fyrir fjvn. lá beiðni um nokkurt árlegt framlag næstu fimm árin til þess að auðvelda umferð fatlaðra um ríkisstofnanir. N sá sér ekki fært að verða við þeirri beiðni. Það mun þó vera viðurkennt af stjórnvöldum að hér er um mjög mikilvægt og mikið nauðsynjamál að ræða, og ég tel, að lyfta í þjóðminjasafnshúsið sé ekki óeðlileg byrjunarframkvæmd í þessu efni, og segi því já.