21.12.1977
Sameinað þing: 35. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1718 í B-deild Alþingistíðinda. (1419)

1. mál, fjárlög 1978

Sigurlaug Bjarnadóttir:

Herra forseti. Ég vil vitna til ummæla hv. 5. þm. Reykv. Þetta mál er til meðferðar hjá heilbr.- og trn. Þar að auki er mér tjáð að þessi mál öll séu í athugun og eðlilegt sé að till. um framkvæmdaröð á því sem hér þarf að gera, liggi fyrir áður en eitt einstakt mál er tekið fyrir. Þar fyrir held ég að það væri ekki óeðlilegt að byrjað væri á þessu verkefni í Þjóðminjasafninu. En með tilliti til þess, sem ég hef sagt hér, greiði ég ekki atkv.