21.12.1977
Sameinað þing: 35. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1720 í B-deild Alþingistíðinda. (1428)

1. mál, fjárlög 1978

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Ég tel að frá sjónarmiði fjvn. hafi verið sanngjarnlega úthlutað því fjármagni sem á að verja til byggingar sjúkrahúsa, og ég tel algera sýndarmennsku felast í flutningi slíkrar till. sem þessarar. Hefði verið nær flm. að hafa skynsamlegri framkvæmd á sjúkrahúsmálum í Reykjavík og óskalista, eins og að flýta þjónustudeild, en fara ekki af stað með tvær deildir samtímis og reyna á engan hátt að koma neinu frá sér. Ég segi nei.