25.01.1978
Efri deild: 53. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1765 í B-deild Alþingistíðinda. (1493)
142. mál, geymslufé
Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti. Þetta frv. fjallar um svokallaða geymslufjárreikninga eða depositum. Með því er átt við þá heimild sem skuldunaut er veitt til þess að fullnægja skuldbindingu sinni með þeim hætti að greiða fé inn á geymslufjárreikning, þegar svo stendur á að vegna kringumstæðna, sem varða kröfuhafann, getur skuldari ekki fullnægt skyldu sinni með öðrum hætti.
Í gildandi lögum um viðskiptabanka ríkisins, þá sem eru í eigu ríkisins, eru ákvæði sem heimila þeim að taka við geymslufé. Nánari ákvæði eru ekki í þeim lögum um framkvæmd og lögfylgjur viðtöku geymslufjár. Ákvæði þess frv., sem hér liggur fyrir, miða að því að bæta úr þessu.
Við samningu frv. hefur verið höfð hliðsjón af lögum um þetta efni á Norðurlöndum. Sérstök lög um geymslufé voru sett í Danmörku árið 1932, í Svíþjóð 1927 og í Noregi 1939. Viðskiptabankarnir hér hafa talið æskilegt að lögfesta reglur um þetta efni.
Athugun hefur verið gerð á því, hve greiðslur í geymslufjárreikninga hafi verið tíðar í bönkunum. Kom þá í ljós, að í Landsbanka Íslands voru að meðaltali 287 greiðslur af þessu tagi árlega á árunum 1969–1974, í Útvegsbanka Íslands var aðeins ein greiðsla á ári að meðaltali í geymslufjárreikninga á sama tímabili, en Búnaðarbankinn fékk ekki heimild til viðtöku geymslufjár fyrr en 1976. Landsbankinn hefur hins vegar haft þessa heimild um langt árabil og var lengi eina bankastofnunin sem hafði hana, og er það sjálfsagt skýringin á því, að menn hafa e.t.v. staðið í þeirri meiningu, að það væri aðeins heimild til að leggja geymslufé inn í hann, og hafa þess vegna notað hana meira í þessu skyni heldur en hina viðskiptabanka ríkisins.
Þó að ekki hafi verið skýr lagaákvæði um þetta efni hér á landi, þá hefur í meginatriðum verið í framkvæmdinni stuðst við svipaðar reglur og gilda á Norðurlöndum.
Í 1. gr. þessa frv. er gert ráð fyrir því, að heimilt sé að greiða skuld á geymslureikning í ríkisviðskiptabanka eða annarri þeirri innlánsstofnun sem heimild hefur lögum samkv. til þess að taka við geymslufé. Eins og er, þá er ekki um aðrar stofnanir að tefla í þessu sambandi en ríkisviðskiptabankana, en að sjálfsögðu getur komið til álita í sambandi við lagasetningu um hlutafélagabanka svo og sparisjóði, sem væntanlega koma til meðferðar hér á hv. Alþ. innan tíðar, að setja ákvæði um þetta efni inn í þau lög.
Ég leyfi mér, herra forseti, að vísa að öðru leyti til frv. sjálfs og athugasemda þeirra, sem fylgja með því, og skal ekki fara fleiri orðum um frv., en leyfi mér að óska þess, að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.