26.01.1978
Sameinað þing: 40. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1811 í B-deild Alþingistíðinda. (1523)

118. mál, rekstrar- og afurðalán til bænda

Sigurlaug Bjarnadóttir:

Herra forseti. Aðeins örfá orð. — Ég hef að sjálfsögðu ekki gögn um Viðlagasjóð þannig að ég geti farið nánar út í þessar tölur. En engu að síður hefur hv. flm. tekið þessa tölu frá sept. 1974 sem viðmiðunartölu, enda þótt hann lýsi því yfir nú, að hún sé í sjálfu sér ekki marktæk, því að ekki sé komið að enda árs og uppgjör hafi því ekki farið fram. Ég vil ekki þrefa meira um þetta, en mér sýnist enn að hv, flm. hafi verið seinheppinn í meðferð talna á þessu þskj.