31.01.1978
Sameinað þing: 41. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1833 í B-deild Alþingistíðinda. (1539)

329. mál, hlutur félagsheimilasjóðs af skemmtanaskatti

Fyrirspyrjandi (Pétur Sigurðsson):

Herra forseti Ég hef leyft mér að flytja fsp. til hæstv. menntmrh. um hluta félagsheimilasjóðs af skemmtanaskatti. Fsp, er í tveimur liðum. Fyrri liðurinn hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Hver var hlutur félagsheimilasjóðs af skemmtanaskatti ársins 1976?“

Síðari liðurinn hljóðar svo:

„Hve há upphæð var veitt úr félagsheimilasjóði á árinu 1976 og hvernig skiptist hún eftir kjördæmum?“

Fsp. þessar eru í framhaldi af annarri fsp. til fjmrh. á sama þskj., 101, sem að öllum líkindum verður ekki svarað í dag vegna anna fjmrh. En ég vænti þess, að svör við þessum tveimur fsp. liggi fyrir nú.