01.02.1978
Efri deild: 54. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1879 í B-deild Alþingistíðinda. (1581)

157. mál, landskipti

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Í þessu frv. felst sú regla, að landskiptagerðum skuli þinglýst, og þykir gleggra að taka það fram með því orðalagi, sem er í þessu frv., heldur en er í þeim lögum sem um þetta gilda nú. Ég óska þess, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. allshn.