07.02.1978
Sameinað þing: 44. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1995 í B-deild Alþingistíðinda. (1634)
336. mál, framkvæmdir á Hrafnseyri til minningar um Jón Sigurðsson
Forsrh. (Geir Hallgrímsson):
Herra forseti. Í tilefni af fyrirspurn hv. 3. þm. Vestf., Þorv. Garðars Kristjánssonar, hef ég óskað eftir upplýsingum frá Hrafnseyrarnefnd, og hefur formaður hennar, Þórhallur Ásgeirsson ráðuneytisstjóri, gert mér grein fyrir fyrirætlunum Hrafnseyrarnefndar í samráði við nefndina. Byggjast þau svo, sem ég geri hér grein fyrir, á þeirri grg. formanns n, og nefndarinnar í heild.
Í fyrsta lagi er spurt: „Hvert er hlutverk Hrafnseyrarnefndar?“ Svarið er: Samkvæmt þál., sem samþ, var á Alþ. 16. jan. 1945, er hlutverk Hrafnseyrarnefndar að stýra framkvæmdum á Hrafnseyri við Arnarfjörð í minningu Jóns Sigurðssonar.
Í öðru lagi er spurt: „Eru fyrirhugaðar frekari framkvæmdir á Hrafnseyri til að efla staðinn í minningu Jóns Sigurðssonar?“ Svarið er: Hrafnseyrarnefnd stefnir að því að láta fullgera bygginguna á Hrafnseyri með því að byggja við hana nýja álmu, þar sem verði inngangur að minjasafni Jóns Sigurðssonar og kapella sem um leið megi nota til fundarhalda. Gert er ráð fyrir að kostnaður við þessar byggingaframkvæmdir greiðist m.a. úr Minningarsjóði Dóru Þórhallsdóttur og með samskotum einstaklinga og samtaka sem Hrafnseyrarnefnd hyggst beita sér fyrir. Hrafnseyrarnefnd ætlar sér að ljúka þessum framkvæmdum fyrir hundruðustu ártíð Jóns Sigurðssonar.
Í þriðja lagi er spurt: „Er ætlunin að minnast hundruðustu ártíðar Jóns Sigurðssonar árið 1979 með sérstökum framkvæmdum á Hrafnseyri?“ Og svarið er: Aðrar framkvæmdir en hér hefur verið skýrt frá eru ekki í undirbúningi hjá Hrafnseyrarnefnd. N, ráðgerir að minnast hundruðustu ártíðar Jóns Sigurðssonar með opnun minjasafns Jóns Sigurðssonar, vígslu kapellunnar og á annan viðeigandi hátt.
Með þessari grg. n. fylgja fundargerðir hennar síðustu árin, frá 1974, 1975, 1976 og 1977, þar sem drepið er á ýmislegt varðandi uppbyggingu staðarins og hlutverk n. Ég sé ekki ástæðu til að fjalla nánar um þau málefni, sem n, hefur rætt og ákvarðað, en vil taka undir með hv. 3. þm. Vestf., fyrirspyrjanda, að ég tel einsýnt og raunar skyldu okkar að sýna staðnum ræktarsemi og um leið eðlilegt að hundruðustu ártíðar Jóns Sigurðssonar sé minnst m.a. með því, að staðnum sé gert vel til.