21.02.1978
Sameinað þing: 46. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2521 í B-deild Alþingistíðinda. (1846)

330. mál, reglugerð um rekstur heilsugæslustöðva

Fyrirspyrjandi (Pétur Sigurðsson):

Herra forseti. Á þskj. 101 hef ég leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. fjmrh. um innheimtu skemmtanaskatts, sem hljóðar á þessa leið:

„Hvaða tekjur gaf skemmtanaskatturinn á árinu 1976 og hvernig skiptast þær tekjur eftir kjördæmum?“