28.02.1978
Sameinað þing: 49. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2662 í B-deild Alþingistíðinda. (1941)

179. mál, skuldir fiskiskipaflota landsmanna

Fyrirspyrjandi (Jón Árm. Héðinsson) :

Herra forseti. Ég þakka hæstv. sjútvrh. glöggar og góðar upplýsingar. Það kemur auðvitað í ljós, eins og maður hafði hugboð um, að erlendar skuldir eru verulegar, þannig að gengissigið gagnvart þessum skuldum er nokkuð á annan milljarð. Mikið þarf því að gera til hliðar svo að ávinningur af beinum gengisfellingum komi þessum flota landsmanna að gagni.

Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir upplýsingarnar, sem voru tæmandi samkv. beiðni minni.