08.03.1978
Efri deild: 69. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2815 í B-deild Alþingistíðinda. (2058)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 8. mars 1978.

Þar sem Einar Ágústsson utanrrh. er farinn utan í opinberum erindum, leyfi ég mér samkv. beiðni hans og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Reykjavík, Sverrir Bergmann læknir, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.

Þórarinn Þórarinsson,

form. þingflokks Framsfl.“

Sverrir Bergmann læknir hefur áður setið á Alþingi og býð ég hann velkominn til starfa.