14.03.1978
Sameinað þing: 56. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2876 í B-deild Alþingistíðinda. (2106)
326. mál, orkumál á Austurlandi
Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Þegar Alþ. hafði samþ. lögin um heimild til þess að virkja Bessastaðaá í Fljótsdal var undirbúningur hafinn af Rafmagnsveitum ríkisins. Að þessu verkefni hafa unnið m. a. ráðgjafafyrirtæki um hönnun, Vermir og Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar. Áætlun frá þessum aðilum um virkjun Bessastaðaár við Hól í Fljótsdal ásamt umsögn Rafmagnsveitna ríkisins barst iðnrn. um miðjan desember s. l. Mæltu Rafmagnsveiturnar með því að ráðast í þessa virkjun og hafa lagt til að í sumar verði unnið að fullnaðarhönnun hennar, og verður það gert.
Varðandi spurningu um það, hvaða ráðstafanir hafi verið gerðar til að ekki komi til orkuskorts á Austurlandi á þessum vetri, þá er í fyrsta lagi þess að geta, að fest voru kaup á tveimur 660 kw. dísilvélum og voru þær settar niður á Breiðdalsvík og í Vopnafirði. Í öðru lagi: Tímabundin heimild fékkst til hækkunar á vatnsborði í Lagarfljóti í vetur úr 20.5 m í 21 m, en það eykur öryggi í orkuöflun fyrir svæðið. Í þriðja lagi: Reyðarfjarðarlína milli Grímsárvirkjunar og Stuðla í Reyðarfirði hefur verið tekin í notkun. Það hefur í för með sér, að öryggi í orkuflutningi frá Lagarfossvirkjun og Grímsárvirkjun niður á firði tvöfaldast og flutningsgetan meira en tvöfaldast. Enn fremur sparast um 1 mw. eða 1 þús. kw. við þessa framkvæmd vegna minnkaðra tapa í dreifikerfi. Í fjórða lagi: Auk þessa má geta þess, að þrífösun háspennulínu milli Stöðvarfjarðar og Breiðdalsvíkur verður lokið í ár og stefnt er að því að ljúka uppsetningu aðveitustöðva á Stöðvarfirði og Breiðdalsvík og hækka síðan spennuna á línunni frá Stöðvarfirði til Djúpavogs í 33 kv., en það eykur mjög flutningsgetu línunnar.