14.03.1978
Sameinað þing: 56. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2890 í B-deild Alþingistíðinda. (2125)
347. mál, húsnæði Tryggingarstofnunar ríkisins
Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Ég vil geta þess, að sú nýbreytni var tekin upp, til þess að létta og spara bæði ellilífeyrisþegum og öryrkjum og þá ekki síður því fólki, sem er í hjólastólum, snúninga, að greiða bætur almannatrygginga inn á bankareikninga, eftir því sem fólk vildi sjálft. Stór hluti af ellilífeyris- og örorkuþegum notar nú þessa þjónustu, en hins vegar er aftur töluverður hluti af þessu fólki sem gjarnan vill sækja aurana sína sjálft í Tryggingastofnunina. Ein gömul kona kom til mín í fyrra, og ég spurði hana þá, hvort henni þætti ekki þægilegra að nota bankareikning og láta leggja þetta annaðhvort inn á bók eða ávísanahefti. Hún sagðist aldrei inn í banka hafa komið og ætla að deyja án þess að koma inn í banka. Svo væri líka annað á bak við það að fara inn í Tryggingastofnun, því þar hitti hún þó fólk og kynntist lífinu. Þetta er því líka félagslegs eðlis, að ekki vilja allir nota sér þessa nútímaþjónustu.
Í sambandi við byggingu fyrir Tryggingastofnunina, þá get ég alveg tekið undir það með hv. fyrirspyrjanda, að mér hefur fundist að störf þessarar nefndar, sem ég skipaði, hafi gengið sorglega seint. Hef ég þó nokkrum sinnum ýtt við nefndinni að hraða störfum sínum.