12.10.1977
Neðri deild: 2. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 25 í B-deild Alþingistíðinda. (22)
Umræður utan dagskrár
Páll Pétursson:
Virðulegi forseti. Pílatus heitinn spurði að því, hvað væri sannleikur, og var í dálitlum vafa um það. Hv. 5. þm. Vestf. var í dálitlum vafa um hvert réttlætið væri, það sem hv. þm. 4. þm. Reykn., Jón Skaftason, hv. 9. þm. Reykv., Gylfi Þ. Gíslason, og hv. 3. þm. Reykv., Magnús Kjartansson, hafa verið að tala um, eða hvort réttlætið gæti verið eitthvað ofurlítið fleira en þetta margumtalaða vægi atkvæða.
Þetta vægi hefur raskast á undanförnum árum og er stöðugt að raskast. Fólkið hefur streymt á suðvesturhorn landsins, það kemur hingað vegna þess að það heldur að hér sé betra að búa, og að sumu leyti er hér þægilegra að búa. Þjónusta er fljótvirkari og ódýrari hér, og það er auðvelt, eins og hv. 5. þm. Vestf. drap á, að nefna dæmi þess, að það er ekki jafn réttur í mörgum atriðum, ekki jafn réttur dreifbýlisfólksins og þess fólks sem býr hér á suðvesturhorninu. Nú á Alþ. að tryggja þegnunum sem jöfnust lífskjör í landinu, og þessari skyldu virðist þá Alþ. ekki hafa fullkomlega gegnt. Það hefur ekki sinnt því hlutverki nægilega að jafna aðstöðu fólksins í landinu, jafnvel þó að þetta margumtalaða vægi sé meira á atkv. manna fyrir norðan eða vestan heldur en hér á Reykjanesi. Þm. dreifbýlisins hafa ekki staðið sig nægilega vel. Og mér finnst fráleitt að telja Reykvíkinga eða Reyknesinga stórkostlegum órétti beitta.
Þó að það séu fleiri atkv. hér að baki hverjum þm., þá vil ég benda á það og biðja menn að athuga hvernig búsetu okkar er háttað. Það eru a.m.k. fullir 2/3 af þingheimi sem eru búsettir hér á Faxaflóasvæðinu og halda heimili hér allt árið. Mér taldist svo til, — ég var að renna augum yfir listann áðan, að það væru 18 eða 19 þm. sem búa annars staðar en hér á Faxaflóasvæðinu, hafa þar heimili sín. Þessir 2/3 þingheims, sem búa í Reykjavík eða á Reykjanesi eða hér í nánasta umhverfi, þeir þekkja að sjálfsögðu þann vanda sem hér er við að glíma og þeir eru ekkert að rassskella sjálfa sig með því að beita fólkið við götuna sína sérstökum órétti. Það hefur líka komið fram í þessum umr., að þingmenn dreifbýliskjördæma þurfa að sinna ýmsum nauðsynjaerindum fyrir umbjóðendur sína sem þm. hér í Reykjavík og grennd þurfa ekki að snúast í.
Þó að vafalaust sé heppilegt að gera einhverjar breytingar á kosningalöggjöf og þau mál þurfi að vera í nokkurri endurskoðun öðru hverju, þá legg ég áherslu á það, að að mínu mati eru þm. dreifbýlisins ekki margir og réttur þess síst of freklega tryggður innan þessarar stofnunar.