03.04.1978
Efri deild: 73. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3018 í B-deild Alþingistíðinda. (2222)

227. mál, aukatekjur ríkissjóðs

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen) :

Herra forseti. Frv. það, sem hér er til umr., er flutt samhliða frv. til l. um stimpilgjald og vísast að mestu til þess sem áður sagði um það frv.

Með frv. þessu er lagt til að þinglýsingargjald verði lagt niður í núverandi mynd og sameinist stimpilgjaldinu. í stað núverandi þinglýsingargjalds er lagt til að dómsmrh. ákveði með reglugerð fast gjald fyrir hverja þinglýsingu og yrði sú gjaldtaka óháð fjárhæð þess skjals sem þinglýst er. Þannig yrði þinglýsingargjaldið nokkurs konar þjónustugjald fyrir framkvæmd þinglýsingar, hliðstætt t. d. gjaldi fyrir veðbókarvottorð.

Með vísan til þessa leyfi ég mér, herra forseti, að leggja til að frv. verði að þessari umr. lokinni vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.