04.04.1978
Sameinað þing: 61. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3089 í B-deild Alþingistíðinda. (2262)
143. mál, hönnun nýs alþingishúss
Pétur Sigurðsson:
Herra forseti. Ég get í einu og öllu tekið undir það, sem kom fram hjá síðasta hv. ræðumanni varðandi þetta mál. En það, sem gefur mér tilefni til að standa hér upp, eru þau orð í svarræðu hæstv. forsrh. er hann minntist á húsameistaraembætti ríkisins og þá vinnu sem þar er nú framkvæmd til hönnunar nýs alþingishúss. Ég hef stundum hugsað til þessa embættis í vetur, þegar ég hef komið hér að bílastæði alþingishússins, en þar hefur tekið á móti mér og öðrum þm. gamall maður sem stendur þar úti í öllum veðrum, í grimmustu vetrarveðrum, við vörslu. Þrátt fyrir endurteknar óskir til Alþ. um að hann fái eitthvert húsaskjól á þessu bílastæði okkar hv. alþm. hefur ekki verið hægt að koma á móts við hann og óskir sumra okkar þm. í þessu efni vegna þess m. a. að þetta mundi óprýða lóð alþingishússins. Ég held, persónulega séð, að það mundi prýða okkur alþm. og Alþ. yfirleitt ef þetta yrði gert. Ég veit hins vegar, að það hefur verið komið á móti óskum í þessu efni að nokkru leyti. Þannig er mér kunnugt um að einn af forsetum þingsins mun hafa útvegað honum einkennishúfu sér til skjóls til höfuðsins. Annar forseti mun hafa beitt sér fyrir því, að maðurinn eignaðist og til hans embættis væri keypt mjög vönduð vetrarúlpa. Allt er þetta góðra gjalda vert. Og ef embætti húsameistara ríkisins treystir sér ekki til þess fegurðarinnar vegna að koma upp skýli fyrir næsta haust, skýli sem ég fæ ekki séð annað en mætti kippa burt yfir sumarmánuðina, þá má kannske búast við því að aðrir forsetar þingsins verði búnir að kaupa handa þessum aldraða starfsmanni okkar bæði regnhlíf og skóhlífar áður en vetur gengur aftur í garð. — Á þessu vildi ég vekja athygli í vetrarlok.