04.04.1978
Sameinað þing: 61. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3092 í B-deild Alþingistíðinda. (2268)

351. mál, gjaldtaka á fjölsóttum stöðum í umsjá ríkisins

Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson) :

Herra forseti. Ég endurtek það, að það liggur hvorki fyrir beiðni í samgrn. né samþykki þess um þessa gjaldtöku. Ef hún hefur átt sér stað, þá hefur hún verið ákvörðuð af öðrum en samgrn. Ég geri ráð fyrir að það gjald, sem Náttúruverndarráð hefur tekið og upplýst var um áðan, sé samkv. heimild í þeim lögum, sem það starfar eftir, og samþykki menntmrn. Ég skal láta leita eftir því hjá ferðaskrifstofum, hvort þær hafa látið innheimta þetta og fyrir hvaða aðila og á hvaða forsendum. En samþykki samgrh. eða samgrn. liggur ekki fyrir um þessa gjaldtöku og mér er að öllu leyti ókunnugt um hana.