04.04.1978
Sameinað þing: 61. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3102 í B-deild Alþingistíðinda. (2279)
229. mál, lausaskuldir bænda
Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson) :
Herra forseti. Út af fsp. hv. 5. þm. Vesturl. vil ég taka eftirfarandi fram:
Að þessu máli hefur verið unnið fyrst og fremst af Árna Jónassyni erindreka Stéttasambands bænda, sem tók það að sér fyrir mig í fyrra að vinna að þessu máli, en með honum hafa einnig unnið Sveinbjörn Dagfinnsson ráðuneytisstjóri í landbrn. og Sigurður Lindal bóndi á Lækjamóti. Þessir menn unnu áður að sama verki á árinu 1972, held ég að það hafi verið, og gafst sú vinna vel og hefur mér verið tjáð að yfirleitt hafi það staðist sem varð þeirra niðurstaða.
Í þessum athugunum, sem gerðar hafa verið, hefur það komið fram, að 407 bændur hafa óskað eftir að mál þeirra yrðu athuguð og reynt að útvega þeim lán til þess að greiða úr sínum lausaskuldum. Alls skulda þessir bændur föst lán, sem eru 1951 millj. kr., en lausaskuldirnar eru 1 milljarður 84 millj. kr. Þetta er mismunandi eftir sýslum og bæði hvað fjárhæð snertir og fjölda bænda. Það er allt niður í einn mann í Kjósarsýslu, 9 menn í Mýrasýslu, 16 í Borgarfjarðarsýslu, 30 í Snæfellsnessýslu, 20 í Dalasýslu, 7 í Austur-Barðastrandarsýslu, 5 í Vestur-Barðastrandarsýslu, enginn í Vestur-Ísafjarðarsýslu, 3 í Norður-Ísafjarðarsýslu, 9 í Strandasýslu, 11 á Vestur-Húnavatnssýslu, 24 í Austur-Húnavatnssýslu, 26 í Skagafjarðarsýslu, 41 í Eyjafjarðarsýslu, 38 í Suður-Þingeyjarsýslu, 10 í Norður- Þingeyjarsýslu, 27 í Norður-Múlasýslu, 28 í Suður-Múlasýslu, 5 í Austur-Skaftafellssýslu, 10 í Vestur-Skaftafellssýslu. 50 í Rangárvallasýslu og 43 í Árnessýslu.
Það er mjög misjafnt hvað menn skulda í hinum einstöku héruðum og hvað sú fjárhæð er mikil sem þeir skulda. Á bilinu 1–2 millj. kr. eru 124 bændur á öllu landinu, 2–3 millj. 90, 3–4 millj. 48, 4–5 millj. 21, 5–6 millj. 16 og 6–7 millj. líka 16, 7–8 millj. 7 og eftir það er þetta 1, 10–15 eru 2, og svo er allt upp í 45 millj. sem einn bóndi skuldar.
Í framhaldi af þessu vinna nú þeir Árni Jónasson og Sveinbjörn Dagfinnsson ráðuneytisstjóri frekar að athugun málsins. M. a. kom í ljós hjá Árna Jónassyni, sem mest hefur unnið að þessu, að á þessu varð nokkur breyting á milli áranna 1975 og 1976, en þær tölur, sem hér hafa verið gefnar upp, eru í árslok 1976. Hins vegar vinnur Árni nú að athugun á því, hvaða breyting hefur orðið á þessu á árinu 1977, og verður reynt að hraða því eins og föng eru til. Enn fremur er þá jafnhliða verið að vinna að hugsanlegum leiðum til úrbóta í sambandi við málin. Ég hygg að á þessu hafi orðið allmikil breyting á árinu 1977, en þó kemur það á ljós þegar þessi athugun hefur verið gerð, og á hún að vera tiltölulega auðveld eftir þeim gögnum sem þeir hafa nú í höndum þar um.
Þetta eru þær upplýsingar sem ég get gefið að þessu sinni. Ég get að sjálfsögðu ekki sagt um fjárútvegunina fyrr en heildarmálið liggur fyrir. En vafalaust tekur sinn tíma að útvega þetta fé eða leita eftir ráðum til að mæta þessu, og hygg ég að þar komi fram, eins og gert var síðast, að það var farin fleiri en ein leið til þess að bæta úr því sem þá þurfti til að greiða úr þessum málum.
Þetta vona ég að nægi hv. fyrirspyrjanda í sambandi við fsp. hans.