05.04.1978
Efri deild: 74. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3140 í B-deild Alþingistíðinda. (2311)
218. mál, áskorunarmál
Frsm. (Ingi Tryggvason) :
Herra forseti. Allshn. hefur rætt frv. til l. um breyt. á lögum um áskorunarmál, og var n. sammála um að mæla með samþykkt frv. Fjarverandi afgreiðslu málsins var Halldór Ásgrímsson.
Eins og hv. þdm. er kunnugt fjallar þetta frv. um áskorunarmál. Helstu atriðin, sem þar er lagt til að breytt verði, eru á þá lund, að stefnandi á samkvæmt frv. að geta sjálfur gefið út áskorunarstefnu. Er talið að þetta muni spara nokkra vinnu og flýta fyrir afgreiðslu mála. Enn fremur er í þessu frv. lagt til, að stefnukröfur verði aðfararhæfar að liðnum sjö sólarhringum, en það á einnig að flýta fyrir afgreiðslu málanna.
Ég tel ekki ástæðu til að flytja frekari framsöguræðu með nál. hv. allshn., enda var þetta mál skýrt í framsöguræðu á sínum tíma.