01.11.1977
Sameinað þing: 11. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 341 í B-deild Alþingistíðinda. (267)
313. mál, bifreiðahlunnindi bankastjóra
Fyrirspyrjandi (Stefán Jónsson):
Herra forseti. Hér er komið að hinni annarri fyrirspurn um bifreiðahlunnindi, sem ég vék að fyrir skemmstu. Ég mun ekki hafa langan inngang að þeirri fyrirspurn. Í hinu fyrra tilfelli eru bifreiðahlunnindi veitt lögum samkvæmt. Hér er um það að ræða, að mjög hálaunaðir embættismenn, sem haldið hafa árum saman með einhverjum hætti til jafns við ráðh., virðast hafa í afli síns embættis tekið sér rétt fram hjá lögum, sem öðrum þegnum ríkisins er ekki ætlaður, þar sem er innflutningur tollfrjálsra og gjaldfrjálsra bíla.
Ég hef óskað eftir því, að hæstv. viðskrh. segði okkur frá rökunum sem að því hníga að bankastjórar ríkisbankanna njóta sömu fríðinda og ráðh. og fá lögum samkv. varðandi bifreiðakaup og bílarekstur. Enda þótt ekki sé það tekið fram í fyrirspurninni, þá má bæta hér við, að forstjórar Framkvæmdastofnunar virðast síðan hafa í sama valdi tekið sér þennan rétt varðandi bílafríðindi.