18.04.1978
Sameinað þing: 67. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3549 í B-deild Alþingistíðinda. (2707)
354. mál, hátíðarbrigði vegna stórafmælis Snorra Sturlusonar
Benedikt Gröndal:
Herra forseti. Um leið og ég fagna því, að þetta er komið til umr. opinberlega, vil ég svara hv. síðasta ræðumanni með því að minna á, að á haustinu 1956, þegar bæði hæstv. samgrh. og ég vorum nýir þm., minnir mig að við höfum báðir flutt till. um að sett yrði Reykholtsnefnd, sem átti að gera eitthvað fyrir Reykholt sem sögustað. Nefndin kom nokkrum sinnum saman á næstu árum og meginverkefni hennar var að hindra að nýbyggingar skólans og annað, sem þarna hefur verið reist, yrði byggt á miðju svæðinu, þar sem talið er að bestu manna yfirsýn að Snorrabær hafi verið, þannig að nýbyggingar gætu ekki eyðilagt þann hluta staðarins, sem e. t. v. kynni að geyma minjar sem við þekkjum ekki enn þá, því að ekki er enn búið að grafa út Snorragöng. Það hefur ekki enn verið aðstaða til þess vegna eldri bygginga. Þegar að því kemur að grafið verði inn í sjálfan gamla hólinn veit enginn hvað kann að finnast. Þessi verndarstarfsemi frá sögulegu sjónarmiði, jafnframt því sem bæði Alþ. og aðrir gerðu það sem þeir gátu fyrir skólann á þessum stað, hefur verið meginverkefni nefndarinnar ásamt ýmsum smærri verkefnum sem ég hirði ekki að nefna hér, en snerta viðhald á Snorralaug og önnur stærri framkvæmdamál.