19.04.1978
Efri deild: 80. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3614 í B-deild Alþingistíðinda. (2738)
285. mál, sáttastörf í vinnudeilum
Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen) :
Herra forseti. Með þessu frv. eru engin réttindi verkalýðsfélaga á nokkurn hátt skert, eins og ég tók fram áðan. Þegar sagt er í grg. frv., að aukinn sé réttur sáttasemjara til afskipta af vinnudeilum, þá felst í því í rauninni eingöngu það sem leiðir af því, að hann verður starfandi að staðaldri og mun þess vegna fylgjast betur með aðdraganda vinnudeilna og hefur rétt til þess að óska upplýsinga, kynna sér mál og beita áhrifum sínum til sátta fyrr en hingað til hefur gerst.
Ég vil líka taka fram, að það hefur ekki verið ætlunin að afgreiða slíkt frv. sem þetta nema í fullu samráði við og með samþykki verkalýðshreyfingarinnar. Hins vegar teldi ég ákaflega mikilvægt, þar sem ég ætla að víðtæk samstaða sé um frv. við aðila vinnumarkaðarins, að tækist að afgreiða það og lögfesta á þessu þingi.