19.04.1978
Efri deild: 80. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3623 í B-deild Alþingistíðinda. (2759)
192. mál, sveitarstjórnarlög
Frsm. (Jón Helgason) :
Herra forseti. Félmn. hefur fjallað um frv. til l. um breyt. á sveitarstjórnarlögum, nr. 58 29. mars 1961. Eins og það frv. var afgreitt frá Nd., þá er efni þess um þá breytingu á kosningu sveitarstjórnarmanna, ef kosning er óhlutbundin, að kosning aðal- og varamanna skuli fara fram samtímis, en kjörseðli skuli skipt í tvennt þannig að fái menn atkvæði í sæti varamanns skuli þau ekki gilda við kosningu í sæti aðalmanns, en hins vegar njóta varamenn þeirra atkvæða sem þeir fá í sæti aðalmanna.
Félmn. fékk á sinn fund ráðuneytisstjóra í félmrn. og að lokinni athugun málsins leggur hún eindregið til að frv. verði samþykkt óbreytt.