19.04.1978
Neðri deild: 79. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3644 í B-deild Alþingistíðinda. (2814)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Ragnhildur Helgadóttir) :

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 19. apríl 1978

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Norðurl. e., Kristján Ármannsson framkvæmdastjóri, Kópaskeri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Ingvar Gíslason,

1. þm. Norðurl. e.

Kristján Ármannsson hefur áður átt sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og býð ég hann velkominn til starfa í deildinni.