19.04.1978
Neðri deild: 79. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3690 í B-deild Alþingistíðinda. (2862)

167. mál, Fiskimálaráð

Frsm. (Sverrir Hermannsson) :

Herra forseti. Þetta frv. kemur frá Ed. og fjallar um það, að hrófatildur, sem nefnt hefur verið Fiskimálaráð, verði rifið að grunni. Sjútvn. d. hefur fjallað um málið og er sammála um að taka undir þessa afgreiðslu hv. Ed. Fjarri góðu gamni voru hv. þm. Sighvatur Björgvinsson og Pétur Sigurðsson.