21.04.1978
Sameinað þing: 69. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3690 í B-deild Alþingistíðinda. (2864)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Ásgeir Bjarnason):

Mér hefur borist eftirfarandi bréf:

„Reykjavík, 19. apríl 1978.

Þorv. Garðar Kristjánsson, framkvæmdastjóri þingflokks sjálfstæðismanna, hefur ritað mér á þessa leið:

„Samkv. beiðni Péturs Sigurðssonar, 8, þm. Reykv., sem nú er á förum til útlanda í opinberum erindum, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosninga til Alþingis að óska þess, að 2. varamaður hans, Gunnar J. Friðriksson, iðnrekandi, taki á meðan sæti hans á Alþingi.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Ragnhildur Helgadóttir,

forseti neðri deildar.“

Gunnar J. Friðriksson hefur áður setið á þingi og býð ég hann velkominn til starfa á Alþingi.