24.04.1978
Neðri deild: 82. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3851 í B-deild Alþingistíðinda. (3014)
200. mál, sala eyðijarðanna Kroppsstaða og Efstabóls í Mosvallahreppi
Frsm. (Pálmi Jónsson) :
Herra forseti. Landbn. þessarar hv. d. hefur fjallað um frv. til l. um heimild fyrir ríkisstj. til að selja eyðijarðirnar Kroppsstaði og Efstaból í Mosvallahreppi, á þskj. 395. Álit n. er prentað á þskj. 552, en þar leggur n. einróma til að frv. verði samþykkt óbreytt. 3 um. skrifa þó undir með fyrirvara og hv. þm. Eðvarð Sigurðsson var fjarstaddur afgreiðslu málsins.
Með frv. eru prentuð fskj. Í fyrsta lagi frá hreppsnefnd Mosvallahrepps, sem hefur samþykkt með meiri hl. atkv. að mæla með þessari ráðstöfun jarðanna, og er það undirritað af Guðmundi Inga Kristjánssyni oddvita Mosvallahrepps. Í öðru lagi fskj. II frá jarðanefnd Vestur-Ísafjarðarsýslu, en meiri hl. jarðanefndar mælir með því, að þessi lagaheimild fáist. Það fskj. er undirritað af Valdimar Gíslasyni fyrir hönd jarðanefndar.
Með þetta frv. er farið eins og önnur slík af heilu landbn. þessarar hv. d., að frv. var vísað til umsagnar í fyrsta lagi jarðeignadeildar landbrn. og í öðru lagi Landnáms ríkisins. Umsagnir þessara aðila bera með sér að ekki er um bein meðmæli að ræða frá þeirra hálfu með sölu jarðanna, en í umsögn jarðadeildar segir þó m. a., með leyfi hæstv. forseta:
„Þar sem báðar þessar jarðir eru samliggjandi Kirkjubóli er ótvírætt hagur að því fyrir Kirkjubólsbónda að hafa nytjar af jörðunum. Kirkjuból var alllengi í eyði. Á þeim tíma voru Kroppsstaðir og Efstaból leigðar tímabundinni leigu. Þar sem Kirkjuból er komið aftur í byggð virðist ástæða til að leigja jarðir þessar Bjarna, ef hann óskar þess, þegar þær losna úr leigu.
Um sölu jarðanna til Bjarna Kristinssonar er hins vegar það að segja, að þar sem hann er ekki eigandi Kirkjubóls er engin trygging fyrir sameiginlegri nýtingu þessara þriggja jarða nema meðan Bjarni býr á Kirkjubóli, og eru því vart rök fyrir að selja honum nefndar jarðir nema hann öðlist jafnframt eignarhald á Kirkjubóli.“
Undir þetta ritar fyrir hönd ráðh., Gísli Brynjólfsson.
Í umsókn Landnáms ríkisins kemur fram að Landnám ríkisins viðurkennir hagræðingu í því að sameina Kroppsstaði og Efstaból Kirkjubóli, eins og vænta má að yrði ef umrætt frv. verður samþykkt. En Landnámið lítur eigi að síður svo á, að æskilegra væri að gera svokallaða landbúnaðarúttekt á jörðum í hreppnum og taka ákvarðanir um skipulagningu byggðarinnar út frá slíkri landbúnaðarúttekt. Niðurstaða Landnáms ríkisins er á þá lund, að það hvorki mælir með frv. né gegn samþykkt þess.
Eins og fram hefur komið í þeim gögnum, sem ég hef hér vitnað til, eru þessar tvær eyðijarðir nú bundnar tímabundinni leigu til annarra aðila, en það virðist koma fram bæði frá þeim stofnunum, sem frv. hefur verið vísað til, svo og frá heimaaðilum, að ótvíræð hagræðing væri í því fólgin að þessar jarðir yrðu nytjaðar saman, og væntanlega, þegar sá tími væri kominn að leigutíma liðnum, er eðlilegt að þá kæmust þessar jarðir á eina hönd.
Í ljósi þessara upplýsinga svo og þeirra fskj., sem ég vitnaði til og fylgja frv. sjálfu, mælir landbn. með því, að frv. verði samþ. óbreytt, og reiknar þá með því, að landbrn. mundi nota þá heimild, sem fælist í slíkum lögum til þess að selja þessar jarðir Bjarna Kristinssyni, þegar það færi gæfist, sem yrði þá til þess að koma betra skipulagi á byggð í þessum sveitarhluta.
Ég tel mig ekki þurfa að lengja þetta mál. Eins og ég sagði leggur n. einróma til að frv. verði samþ. óbreytt. 3 nm. hafa skrifað undir með fyrirvara.