24.04.1978
Neðri deild: 82. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3865 í B-deild Alþingistíðinda. (3024)

267. mál, lögsagnarumdæmi Hafnarfjarðarkaupstaðar

Frsm. (Gunnlaugur Finnsson):

Hæstv. forseti. N. fjallaði um þetta frv. og bar það saman við kort og fskj., sem frv. fylgdu, og samninga á milli hlutaðeigandi sveitarfélaga. Á þeim fskj. byggði n. niðurstöðu sína. Hún er sú, að n. mælir með því, að frv. verði samþykkt óbreytt.