25.04.1978
Sameinað þing: 71. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3893 í B-deild Alþingistíðinda. (3062)

140. mál, vegáætlun 1977-1980

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Vegna ummæla hæstv. samgrh. um að mjög ákjósanlegt sé að hér sé um að ræða verkefni nýs þings, má geta þess, að till. þessi er einmitt flutt vegna þess, að á þessu sumri á að kjósa til Alþ. og að hausti kemur saman nýtt þing sem fær þá málið til umfjöllunar og ákvörðunar. Það er því augljóst mál, að hæstv. samgrh. hafa orðið á mismæli. Hann hefur ætlað að segja já, en sagði nei. Með hliðsjón af því og því, að ég er 1. flm. að málinu, segi ég já.