02.11.1977
Neðri deild: 11. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 395 í B-deild Alþingistíðinda. (314)

9. mál, Áburðarverksmiðja ríkisins

Þetta mál hefur að vísu áður komið til kasta Alþ., á þinginu 1967, en þá flutti Benedikt Gröndal frv. um sama efni. Frv. þetta var rætt og sent í n., en átti þaðan ekki afturkvæmt. Nú er það flutt, eins og ég áðan sagði, sem liður í málatilbúnaði okkar Alþfl:

manna um atvinnulýðræði.

Ég tel ekki ástæðu til þess, virðulegi forseti, að hafa fleiri orð um þetta mál að þessu sinni, nema ástæða gefist til, og legg því til að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr, og hv. allshn.