27.04.1978
Sameinað þing: 72. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4038 í B-deild Alþingistíðinda. (3291)
39. mál, flugsamgöngur við Vestfirði
Frsm. (Ellert B. Schram) :
Virðulegi forseti. Hér er um að ræða till. til þál. um athugun á úrbótum í flugsamgöngum við Vestfirði, flutta af Karvel Pálmasyni o. fl. Hún er efnislega á þá leið, að Alþ. álykti að fela samgrh. að láta athuga nú þegar með hvaða hætti tryggja megi sem bestar og öruggastar flugsamgöngur við Vestfirði með þar til greindum hætti, sem segir í till.
Allshn. Sþ. hefur borist umsögn frá flugmálastjóra, sem er dags. 31. mars s. l., en þar segir: „Bréf yðar varðandi umsögn um till. til þál. um athugun á úrbótum á flugsamgöngum við Vestfirði, 39. mál, var lagt fyrir 931. fund flugráðs og samþykkt að flugmálastjórn veiti umbeðna umsögn um þær úrbætur, sem getið er um í till. Verður væntanlega unnið að þeirri umsögn n. k. sumar með það fyrir augum, að hún liggi fyrir n. k. haust fyrir fjárlagaumr.“
Með vísan til þessarar umsagnar hefur allshn. lagt til að þessi þáltill. verði afgreidd með svofelldri rökstuddri dagskrá:
„Þar sem fram kemur í umsögn frá flugmálastjóra, að þegar hefur verið ákveðið að fram fari sú athugun, sem þáltill. fjallar um, tekur Sþ. fyrir næsta mál á dagskrá.“