27.04.1978
Sameinað þing: 72. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4050 í B-deild Alþingistíðinda. (3298)
39. mál, flugsamgöngur við Vestfirði
Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Manni leyfist kannske að leggja örfá orð í belg, þótt málið snúist um rannsókn á úrbótum í flugsamgöngum á Vestfjörðum, enda er þetta ekkert einkamál Vestfjarðaþm.
Ég hef marglesið yfir nál. frá hv. allshn. Hv. n. hefur sent málið og beðið um umsögn flugmálastjórnar, en flugmálastjóri svarar og segist ekki vera tilbúinn með umsögn um málið — það ber bréf hans með sér, ef það er rétt upp prentað — og lofar að senda umsögn um till. á hausti komanda. Forsendurnar fyrir hinni rökstuddu dagskrá eru að mínu viti alls engar til eftir þessu bréfi. Till. fjallar um athugun á úrbótum í flugsamgöngum við Vestfirði og þar er talið upp í 3–4 liðum nákvæmlega hverju farið er fram á rannsókn á. Það er aldeilis útilokað fyrir hið háa Alþ. að mínum dómi að samþykkja rökstudda dagskrá sem byggist á svona misskilningi, vil ég nú kalla það, sem hlýtur að vera.
Hér hlýtur að vera um algeran misskilning að tefla. Ég út af fyrir sig get skilið það. Fyrst þegar ég leit á þetta sýndist mér að þarna byggju í forsendur fyrir rökstuddu dagskránni, en svo er alls ekki, því að ekki segir nokkurn skapaðan hlut um það, að flugmálaráð ætli að kanna þessa þætti, sem hér er lagt til að kannaðir verði, heldur veita umsögn um þá. Þar af leiðir að útilokað er að byggja rökstudda dagskrá á þeim forsendum, að flugmálastjóri hafi þegar ákveðið að fram fari sú athugun sem ályktunartill. gerir ráð fyrir. Það er aldeilis óþingleg málsmeðferð í hæsta máta. Ég skal nú ekki segja til hvaða ráða hægt er að grípa til þess að leiðrétta þessi afglöp annarra en að fella þessa rökstuddu dagskrá. Vil ég þó fara þess á leit við hæstv. forseta, að hann athugi það hjá sér, hvort hann getur ekki beitt sér fyrir því, að leiðrétting verði á þessu gerð og þetta nál. dregið til baka og n. komi saman á nýjum fundi.
Ég verð að segja líka tilviðbótar þessu, að ef þeir hafa skilið það svo, hv. nm. allshn. að í vinnslu væri þessi rannsókn sem hér er lagt til, þá hefði átt að vera skaðlaust að mæla með samþykkt till. Ef þeir hafa trúað því í raun og sannleika, að hér væri á lokastigi úttekt á málinu, þá hefði ekki átt að skaða að hnykkja á málinu með því að samþykkja þessa till. En mér sýnist alla vega heldur óhöndulega að þessu máli staðið.