28.04.1978
Efri deild: 89. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4115 í B-deild Alþingistíðinda. (3345)
280. mál, umferðarlög
Frsm. (Ingi Tryggvason) :
Herra forseti. Allshn. Ed. hefur rætt frv. það, sem hér liggur fyrir um breytingu á umferðarlögum, og mælir n. með samþykkt þess með breytingu sem gerð er grein fyrir á þskj. 672. Breytingin er í því fólgin, að dómsmrh. sé heimilt að fengnum tillögum tryggingaeftirlitsins að hækka vátryggingarfjárhæðir samkv. 1. og 2. mgr. frv. í samræmi við verðlagsbreytingar.
Vátryggingarfjárhæðum í 70. gr. umferðarlaga er ætlað að tryggja greiðslu, að því leyti sem til hrekkur, á bótakröfum vegna tjóna af völdum skráningarskyldra ökutækja í notkun. Hér er sem sagt takmörkuð sú fjárhæð sem tryggt er fyrir. Hugsanlegt er að tjón vegna umferðarslyss geti orðið hærra, en það verður ekki bætt með hinni lögboðnu tryggingu. Verðlagsbreytingar hafa á undanförnum árum verið örar og vátryggingarfjárhæðir hafa e. t. v. ekki verið látnar fylgja þeirri þróun nægilega ört. Bætur eru ákvarðaðar miðað við verðlag þegar tjón er gert upp, en vátryggingarfjárhæðin er miðuð við tryggingartímabilið. Bætur vegna sumra tjóna, einkum persónutjóna, sem ekki er hægt að gera upp fyrr en jafnvel mörgum árum eftir að atburður átti sér stað, verða því hærri að krónutölu og á verðbólgutímum er hætta á að bótafjárhæðin fari upp fyrir þá vátryggingarfjárhæð sem í gildi var. Nauðsynlegt er því, að vátryggingarfjárhæðirnar fylgi verðlagsþróun.
Vátryggingarfjárhæðunum hefur verið breytt á nokkurra ára fresti með lagabreytingu. Segja má að einfaldara sé að breyta vátryggingarfjárhæðunum með stjórnvaldsákvörðun en með lagabreytingum. Spurning er hins vegar við hvaða verðlagsbreytingar eigi að miða. Stærstu tjónin eru vegna persónuslysa og þar er launaviðmiðun þyngst á metum. Leiðbeinandi aðili í vátryggingarmálum er nú tryggingaeftirlitið og hefur það yfirsýn um samsetningu tjónabóta.
Allshn. varð, eins og ég gat um áðan, sammála um að mæla með þessari breytingu á frv., að ráðh. verði hér eftir heimilað að breyta vátryggingarfjárhæðum og miða breytingarnar við almenna verðlagsþróun, þó að ekki hafi þótt fært að taka þarna til, hvaða vísitölu skyldi miðað við.
Herra forseti. Ég tel ekki ástæðu til að orðlengja frekar um þetta mál.