28.04.1978
Neðri deild: 87. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4152 í B-deild Alþingistíðinda. (3382)

189. mál, búnaðarfræðsla

Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson) :

Virðulegi forseti. Þær einu breyt., sem voru gerðar á þessu frv. í hv. Ed., voru þær, að af vangá hafði fallið niður, að þeir, sem ættu fulltrúa í búnaðarfræðslunefndinni, skyldu kosta þá. Í öðru lagi gleymdist, að um ráðningu á slíkum starfsmönnum og húsnæði færi eftir lögum nr. 97/1974. Að öðru leyti er frv, óbreytt.