28.04.1978
Neðri deild: 87. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4153 í B-deild Alþingistíðinda. (3392)

265. mál, hollustuhættir og heilbrigðiseftirlit

Frsm. (Jón Skaftason):

Virðulegi forseti. Heilbr.- og trn. hv. d. hefur haft til athugunar frv. til l. um breyt. á lögum nr. 12 frá 17. mars 1969, um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit. Frv. þetta er komið frá Ed. og var samþ. þar samhljóða. Heilbr.- og trn. Nd. hefur rætt þetta frv. og mæla allir nm. einróma með samþykkt þess óbreytts.