29.04.1978
Efri deild: 94. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4293 í B-deild Alþingistíðinda. (3519)

49. mál, hlutafélög

Fram. (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Eins og menn e. t. v. muna, var frv. til l. um hlutafélög afgreitt héðan frá Ed. með mjög mörgum brtt. Síðan komu í ljós nokkrar prentvillur í frv., sem okkur hafði yfirsést, og einnig nokkrar rangar tilvitnanir og við nánari yfirferð og yfirlestur á frv. var þetta leiðrétt í hv. Nd. Engin efnisbreyting hefur orðið á frv. frá því að það var afgreitt héðan frá Ed. og ég vil því eindregið leggja til að frv. verði samþ. eins og það liggur nú fyrir.