02.05.1978
Sameinað þing: 73. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4309 í B-deild Alþingistíðinda. (3551)

39. mál, flugsamgöngur við Vestfirði

Sverrir Hermannsson:

Herra forseti. Ég hafði í umr. um þessa till. við afgreiðslu hv. allshn. talið að forsendur fyrir hinni rökstuddu dagskrá væru hæpnar. En mér hefur hins vegar verið sýnt fram á það með yfirlýsingu frá flugmálastjóra, að fram mun fara sú rannsókn og athugun, sem till. gerir ráð fyrir, á þessu sumri, og því er það, að ég segi já við hinni rökstuddu dagskrá.