02.05.1978
Efri deild: 95. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4343 í B-deild Alþingistíðinda. (3596)

210. mál, eftirlit með skipum

Frsm. (Jón G. Sólnes):

Herra forseti. Frv. um breyt. á 1. nr. 52 12. maí 1970, um eftirlit með skipum, sem hér liggur fyrir d., er fylgifrv. með frv. um breyt. á l. um meðferð einkamála í héraði sem einnig er til meðferðar í þessari hv. deild.

Allshn. mælir með því á þskj. 773, að frv. verð samþykkt með breytingu á sama þskj. sem varðar gildistöku frv., en slíkt ákvæði vantar í frv.

Breyting sú, sem gert er ráð fyrir í frv., snertir meðferð sjóprófa sem færð eru til meðferðar í sakadómi, e í frv. um meðferð einkamála er ráðgert að sjó- og verslunardómur verði lagður niður.

Lagt er til að brtt. verði samþ. og málinu vísa til 3. umr.