08.11.1977
Sameinað þing: 14. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 564 í B-deild Alþingistíðinda. (372)

1. mál, fjárlög 1978

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Ekki bætti hv. 8. landsk. þm. um betur með þessu, því hér'var sagt að hæstv. fyrrv. fjmrh. tók við fjárlögum úr hendi Alþ. Frv. kom frá ráðh., formaður fjvn. var 11. landsk., sem mótaði meira og minna og að sjálfsögðu eins og formenn fjvn. gera smiði fjárlaganna eftir að frv. var lagt fyrir þingið.