06.05.1978
Efri deild: 103. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4612 í B-deild Alþingistíðinda. (3943)

282. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Ragnar Arnalds:

Herra forseti. Þar sem till. þessi er í fullu samræmi við það stefnuskráratriði okkar Alþb.manna að létta sköttum af lágtekjufólki og með það í huga, að samþykkt frv. verður óhjákvæmilega talsvert íþyngjandi fyrir útivinnandi konur og því brýn þörf á að gera þeim þessa skattbreytingu bærilegri, þá segi ég já.