10.11.1977
Sameinað þing: 15. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 596 í B-deild Alþingistíðinda. (396)

318. mál, verðlag

Þórarinn Þórarinsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins taka undir orð síðasta ræðumanns. Ég er því algjörlega sammála sem hann sagði. Ég sé ekki nein frambærileg rök fyrir því að söluskatturinn verði ekki endurgreiddur fyrir árin 1975 og 1976, og ég vænti þess vegna að hæstv. ríkisstj. endurskoði þessa afstöðu sína. Ég þykist sjá að fyrirspurn hv. flm. hafi haft góð áhrif að því leyti, að hér eru komin jákvæð svör við því að söluskattur verði endurgreiddur fyrir árið 1977. Ég vænti þess, að við nánari athugun þessa máls fáist söluskatturinn frá árunum 1976 og 1975 einnig endurgreiddur því að fyrir því eru fullkomlega gild rök.