10.11.1977
Sameinað þing: 15. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 598 í B-deild Alþingistíðinda. (401)
318. mál, verðlag
Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson). Herra forseti. Ég held að það sé ofmælt hjá hv. fyrirspyrjanda að álagningarkerfið sé eitthvað handahófskennt eða duttlungafullt. (Gripið fram í.) Að þessu leyti, vill hann segja. En ég vil segja það, að það hefur og er fylgt mjög föstum reglum, sjálfsagt að mörgum finnst of föstum reglum, við verðlagningu og við álagningu þar sem um prósentuálagningu er að tefla. Ég vil vekja athygli á því, að álagning að hundraðstölu til er nú og hefur verið um 21/2 árs skeið mun lægri en hún var í mars 1974. Sú regla hefur gilt, að þegar gengislækkanir hafa verið framkvæmdar hefur verið beitt svokallaðri 30% reglu sem hefur haft það í för með sér að við gengislækkun hefur álagning lækkað. Það var gert árið 1972 þegar gengið var lækkað, eins og minnst var á áðan, að vísu ekki stórfelldlega, en þó nokkuð. Þá var þessi regla notuð og það stóð svo þangað til eftir kjarasamningana 1974, þá var ákveðin ný álagning í mars 1974. En bæði við gengislækkunina 1974 og gengislækkunina 1975 var 30% reglunni breytt og álagningin lækkuð. Álagningin prósentvís hefur síðan staðið óbreytt um 21/2 árs skeið að öllu verulegu, nema að því er einstakar vörutegundir snertir. Ég vil taka það skýrt fram til þess að fyrirbyggja þann misskilning, að álagning hafi verið hækkuð á þessu tímabili. Hún hefur þvert á móti verið lækkuð. Og ég hef sagt það, að ég gæti afskaplega vel skilið að verslunarstéttinni væri betur við minn ágæta vin, fyrrv. viðskrh., Lúðvík Jósepsson, hv. þm., heldur en mig. Sannleikurinn er sá, að það hefur verið kreppt að versluninni mjög með þessum álagningarreglum og óvíst hvað hægt er að halda því lengi áfram.
Þetta, sem ég hef hér sagt, á við um hinn almenna verðlagningargeira sem heyrir undir verðlagsnefnd. En út af því sem hv. þm. Benedikt Gröndal sagði, að það gæti verið að þessi afsláttur væri misjafn og þyrfti að athuga það nánar, þá vil ég segja að það er réttmæt aths. hjá honum að mínu mati, að það væri eðlilegt og er í rauninni sjálfsagt að skylda skipafélögin til að senda lista yfir þá veittu afslætti sem þau gefa. Og ég tek undir það með honum, að það verður að hafa sem mest eftirlit með þessu þannig að það sé fullvíst, hvað það er sem þarna er um að tefla.