10.11.1977
Sameinað þing: 15. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 601 í B-deild Alþingistíðinda. (406)
321. mál, starfsmannafjöldi banka o.fl.
Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti. Eins og fsp. gefa tilefni til verður nokkuð mikið af tölum í þessu svari, en ég vænti að hv. þm. geti áttað sig á þeim.
Í fyrsta lagi er spurt: „Hve margir starfsmenn vinna á vegum bankakerfisins og 10 stærstu sparisjóðanna? Hvað voru starfsmenn sömu aðila margir árið 1970?“
Svarið er: Eftir upplýsingum Seðlabankans hafa starfsmenn verið sem hér segir: Seðlabanki 1970 99, í okt. 1977 117. Viðskiptabankar við bankastörf árið 1970 991, í okt. 1977 1438. Við húsvörslu, bifreiðastjórn o.fl. árið 1970 36, okt. 1977 56. 10 stærstu sparisjóðir árið 1970 60, í okt. 1977 110. Samtals gerir þetta 31. des. 1970 1186, en í okt. 1977 1721. Fjölgun starfsmanna frá 1970 er því 535 eða 45.1%.
Í ofangreindum tölum eru ekki taldir með starfsmenn fjárfestingarsjóða, eins og veðdeildar Landsbankans, Stofnlánadeildar landbúnaðarins og Iðnþróunarsjóðs. Þá skal tekið fram að fjöldi þeirra, sem vinna við bankastörf, er miðaður við starfsmenn í fullu starfi, þ.e.a.s. að tveir menn í hálfs dags starfi teljast sem einn starfsmaður. Það sama mun í aðalatriðum eiga við um tölu starfsfólks við húsvörslu o.fl. Tölurnar ná þæði til fastráðins og lausráðins starfsfólks. Ekki þótti ástæða til að tilgreina fjölda þeirra er vinna við mötuneyti og ræstingu hjá bönkunum enda er þar um að ræða störf sem unnin eru hluta úr degi og að miklu leyti skv. uppmælingu. Til viðbótar framangreindu ber að nefna að Reiknistofa bankanna tók til starfa í ársbyrjun 1974 og starfa þar nú 30 menn.
Í öðru lagi var spurt: „Hverjar voru bókfærðar tekjur bankanna umfram gjöld 1976, þar með taldar tekjur af eigin fé?“
Svar: Skv. ársreikningum viðskiptabankanna fyrir árið 1976 var tekjuafgangur þeirra samtals 686 millj. kr., og hafa vextir af eigin fé þá ekki verið reiknaðir til gjalda. Tekjuafgangur Seðlabankans 1976 nam samkvæmt upplýsingum frá Sveini Jónssyni aðstoðarbankastjóra, eftir afskriftir af gengistöpum og arðgreiðslu af stofnfé samkvæmt lögum, 158 millj. kr. sem sundurliðast þannig: Vextir af eigin sjóðum 123 millj. Til ráðstöfunar til eigin sjóða 35 millj.
Í þriðja lagi er spurt: „Hve margir starfsmenn vinna á vegum olíufélaganna? Hvað voru þeir margir 1970?“
Svar: Eftir upplýsingum olíufélaganna þriggja var meðalfjöldi þeirra 1976 757 og er þá miðað við slysatryggðar vinnuvikur. Árið 1970 var samsvarandi tala 666. Hefur því starfsmönnum olíufélaganna fjölgað frá 1970 til 1976 um 91 eða um 13.7%. Í ofangreindum tölum eru ekki sjálfstæðir umboðsmenn félaganna eða starfsmenn umboðsmanna sem vinna við olíudreifingu.
Í fjórða lagi er spurt: „Hve mörg fyrirtæki starfa nú að innflutningsverslun hér á landi og hve margir eru starfsmenn þeirra? Hvað hefur starfsmönnum þeirra fjölgað síðan 1970?“
Svar: Þær upplýsingar, sem hér fara á eftir, eru byggðar á skýrslu Þjóðhagsstofnunar um verslunina 1975 og skýrslu Hagstofu Íslands, en þær eru, ettir því sem næst verður komist, einu tiltæku upplýsingarnar í þessum efnum. Skýrslurnar ná hins vegar ekki lengra en til ársins 1975.
Ef tekin er tala heildsölufyrirtækja í öðrum greinum verslunar en olíuvörum, byggingarvörum og bílum hefur fjöldi þeirra á öllu landinu 1975 verið 628. Af þeim eru fyrirtæki með starfsmannafjölda 5 menn eða færri — eða að 5 mannárum stendur hér — vorið 1975 524 eða 83.4% af heildartölu innflutningsfyrirtækjanna. Fyrirtæki með starfsmannafjölda 5–30 mannár voru 95 eða 15.1% af innflutningsfyrirtækjunum. Og fyrirtæki með 30 eða fleiri mannár voru 9 eða 1.4%. Sést af þessu að mjög mikið er um smá fyrirtæki í heildversluninni. Eftir sömu skýrslum hefur starfsmannafjöldi heildsölufyrirtækja í þessum flokki árið 1970 verið 1688 mannár, en 1975 2410 mannár, eða fjölgun um 722 mannár, sem er 42.8% .
Ég vísa að öðru leyti um upplýsingar til ofangreindrar skýrslu Þjóðhagsstofnunar og til Hagtíðinda og þá einkanlega marsheftis 1977 og aprílheftis 1972. En því miður reyndist ekki unnt að leggja í það vinnu að afla upplýsinga um hvernig þessi mál stæðu í dag.