10.11.1977
Sameinað þing: 15. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 606 í B-deild Alþingistíðinda. (410)
322. mál, Orkubú Vestfjarða
Fyrirspyrjandi (Sighvatur Björgvinsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. iðnrh. fyrir svör hans. Ég vil aðeins taka það fram, að ég og fleiri, sem sátum fundinn á Ísafirði þar sem gengið var frá stofnsamningi um Orkubú Vestf jarða og hann undirritaður, stóðum í þeirri trú og stöndum enn, að þar hafi hæstv. iðnrh. ekki aðeins gefið fyrirheit um að ef byggðalína verði lögð vestur á firði, þá verði Rafmagnsveitum ríkisins falið að framkvæma verkið, heldur þvert á móti hafi hæstv. ráðh. einnig gefið fyrirheit um að að því verki yrði staðið og það verk yrði kostað með nákvæmlega sama hætti og sú byggðalína sem áður hefur verið lögð, þ.e.a.s. byggðalínan norður í land. Þetta tel ég að hafi verið af hálfu allra fulltrúanna á þessum fundi algjör forsenda fyrir því að þeir skrifuðu undir stofnsamninginn. Og ég vil leggja áherslu á að ef þeir við það tækifæri hefðu haft pata af því, að þessar till. Rafmagnsveitna ríkisins um lagningu byggðalínu til Vestfjarða með sama hætti og lagning byggðalínu til Norðurlands átti sér stað, — ef þeir hefðu haft pata af því að slíkt mundi ekki verða gert á næstu tveim árum, þá mundu flestir, a.m.k. allmargir af þeim fulltrúum sveitarstjórna, sem voru staddir á fundinum á Ísafirði, ekki hafa skrifað undir stofnsamninginn. Það er stutt síðan ég átti tal við einn af stjórnarmönnum í Orkubúinu og hann tjáði mér — hann gat auðvitað ekki talað fyrir munn annarra stjórnarmanna — að a.m.k. hann stæði enn í þeirri trú að þetta væri fyrirheit frá hæstv. ríkisstj. Ég, eins og aðrir þm. Vestfirðinga og aðrir hv. alþm., bind að sjálfsögðu miklar vonir við þetta fyrirtæki. Og ég ætla að vona að fyrsta skrefið, sem tekið verður á vegum þess fyrirtækis hér á hinu háa Alþ. við afgreiðslu fjárlaga nú, verði ekki spor í öfuga átt.