17.10.1977
Sameinað þing: 4. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í B-deild Alþingistíðinda. (46)
Umræður utan dagskrár
Forsrh. (Geir Hallgrímsson):
Herra forseti. Þótt ég sé vissulega sammála niðurlagsorðum hæstv. utanrrh. og þeim óskum sem hann þar lét í ljós, þá tel ég ekki fært annað en að verða við beiðni hv. 5. þm. Norðurl. e. um að lesa hér upp bréf kjaradeilunefndar til ríkisstjórnar Íslands og stjórnar BSRB, en ég hef getið um þetta bréf og aðalefnisinnihald þess fyrr í umr. Bréfið hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Reykjavík, 16. okt. 1977.
Til ríkisstjórnar Íslands og stjórnar BSRB.
Í yfirstandandi verkfalli BSRB hefur ekki verið hlýtt ákvörðunum kjaradeilunefndar í nokkrum tilvikum. Hafa þar með verið brotnar þær grundvallarreglur sem ríkisstj. Íslands og stjórn BSRB komu sér saman um að skyldu gilda í verkfalli opinherra starfsmanna og staðfestar voru með setningu laga nr. 29/1976.
Ofangreind tilvik skulu hér rakin.
1. Hinn 11. okt. s.l. ákvað kjaradeilunefnd eftir áskorun formanns BSRB og formanns Hjúkrunarfélags Íslands og að fengnum upplýsingum frá fulltrúum hjúkrunarskólanna og Landsspítalans að hjúkrunarkennarar skyldu starfa þrátt fyrir verkfall BSRB. Vísast til fundargerðar í fskj. nr. 1, tl. 1 og 3. Ákvörðun n. var tilkynnt bréflega sama dag, sbr, fskj. nr. 2. Þrátt fyrir þessa ákvörðun n. loka verkfallsverðir BSRB Hjúkrunarskóla Íslands hinn 13. okt. s.l., sbr. bréf skólans, dags. sama dag, merkt fskj. nr. 3.
2. Á fundi n. 12. okt. s.l. samþ. hún, að skv. ábendingu frá Slökkvistöðinni í Reykjavík til Pósts og síma skyldi samband við símstöðina við Brúarland lagfært, sbr. fskj. nr. 4. Viðgerð þessi var hindruð af verkfallsvörðum BSRB.
3. Á sama fundi og um getur í tl. 2 samþ. n. að kalla skyldi út viðgerðarmann til þess að gera við kortavél fyrir tölvu telex-þjónustu Pósts og síma. Viðgerðarmaður þessi var hindraður í að vinna starf sitt. Vísast um þetta til fundargerðar 13. okt., fskj. nr. 6. tl. 1. Voru fyrirmæli til viðgerðarmannsins ítrekuð með bréfi, sbr. fskj. nr. 7, en þar voru starfsmanninum jafnframt gefin fyrirmæli um að skipta um kort í götunarvélum telexstöðvarinnar.
Með bréfi BSRB, dags. 14. okt., sbr, fskj. nr. 5, tilkynnti BSRB að verkfallsvarsla yrði á nýjan leik sett á telexstöðina, og hefur því framangreindur starfsmaður af þeim sökum ekki getað skipt um þau kort sem honum hafði verið fyrirskipað að gera.
Í framhaldi af þessum aðgerðum verkfallsvarða BSRB hefur kjaradeilunefnd borist bréf frá verkfallsnefnd BSRB, dags. 14. okt. s.l., sbr. fskj. nr. 8, þar sem n. er beðin að endurskoða þessa ákvörðun sína. Í bréfi verkfallsnefndarinnar kemur ennfremur fram, að hún hyggst taka lögskipað vald kjaradeilunefndar í sínar hendur, sbr. niðurlag bréfsins: „Hins vegar vill verkfallsnefnd BSRB taka fram, að hún mun taka rökstuddar óskir um nauðsynlegar viðgerðir á telexbúnaði stjórnvalda, ríkisstofnana og erlendra sendiráða hér á landi til vinsamlegrar athugunar eftir því sem efni standa til hverju sinni.“
4. Hinn 11. okt. s.l. var tekin fyrir hjá n. orðsending frá lögreglustjóranum á Keflavíkurflugvelli um hliðvörslu lögreglumanna á flugvellinum. Ákvörðun n. var tilkynnt með bréfi 11. okt., sbr. fskj. nr. 9. Þrátt fyrir þessi fyrirmæli hefur hliðgæslu verið hagað þannig að það fær ekki samrýmst ákvörðun þessari.
5. Kl. 12.30 föstudaginn 14. okt. kom hjúkrunarforstjóri Landsspítalans á fund n. til að gefa henni upplýsingar um ástand starfsmannamála á spítalanum. Greindi hún frá því, að um morguninn hefðu verkfallsverðir „sent heim“ aðstoðarfólk sjúkraþjálfara á Landsspítalanum. Síðar staðfesti yfirsjúkraþjálfari spítalans að 12 starfsmenn hefðu verið sendir heim af verkfallsvörðum. Þetta var gert þótt legið hafi fyrir ákvörðun kjaradeilunefndar um að starfsmennirnir skyldu starfa.
6. Í ákvörðun kjaradeilunefndar er gert ráð fyrir því, að löggæslu sé hagað á sama hátt og almennt hefur tíðkast með tilteknum afmörkuðum undantekningum, sbr. bókun n. 1. okt., fskj. 10. Í tilkynningu Lögreglufélags Reykjavíkur, dags. 14. okt., fskj. 11, kemur fram að Lögreglufélagið og verkfallsnefnd BSRB hafa einhliða ákveðið frekari takmarkanir á störfum lögreglumanna, og fara takmarkanir þessar í bága við ákvarðanir nefndarinnar.
Kjaradeilunefnd telur rétt og skylt að gera ríkisstjórn Íslands og stjórn BSRB grein fyrir þessum atriðum nú þegar.
Kjaradeilunefnd,
Helgi V. Jónsson, Friðjón Þórðarson,
Pétur Einarsson, Þorsteinn Geirsson,
Ólafur Ólafsson, Nanna Jónasdóttir,
Guðmundur Gígja, Ágúst Geirsson,
Magnús Óskarsson.“
Að gefnu tilefni vil ég láta það koma hér fram, að mér skilst að þetta sé kjaradeilunefnd fullskipuð og ekki eingöngu velflestir nm., sem undir þetta bréf rita, en þannig mun ég hafa tekið til orða í varúðarskyni hér fyrr í dag.
Ég vil enn fremur, og það skulu vera lokaorð mín að sinni, vitna hér — með leyfi forseta — í 26. gr. laga um kjarasamninga BSRB, en sú grein hljóðar svo:
„Þótt löglegt verkfall sé hafið er starfsmönnum, sem í verkfalli eru, skylt að starfa svo að haldið verði uppi nauðsynlegri öryggisvörslu og heilsugæslu. Kjaradeilunefnd ákveður hvaða einstakir menn skuli vinna í verkfalli og hún skiptir vinnuskyldu á milli manna:
Hér er alveg ótvírætt tekið fram, að kjaradeilunefnd hefur fullt og óskorað úrskurðarvald um hverjir skuli vinna í verkfalli og fram hjá því verður ekki gengið. Það er ekki hægt að leysa ágreining með öðrum hætti en úrskurði kjaradeilunefndar. Ef aðilar telja úrskurð kjaradeilunefndar ekki eðli málsins skv. réttan eða lögum samkvæman, þá á viðkomandi aðili, hvor þeirra sem er, rétt á að leita úrskurðar dómstóla um málsmeðferð, en úrskurði kjaradeilunefndar verður ekki breytt lögum skv. með verkfallsvörslu eða beitingu valds.