22.11.1977
Sameinað þing: 21. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 757 í B-deild Alþingistíðinda. (528)

Rannsókn kjörbréfs - varamaður tekur þingsæti

Forseti (Ásgeir Bjarnason):

Mér hefur borist eftirfarandi bréf:

„Reykjavík, 21. nóv. 1977.

Axel Jónsson, 10. landsk. þm., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður landsk. þm. Sjálfstfl., Halldór Blöndal kennari, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fram fara í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Forseti Ed. Þorv. Garðar Kristjánsson.“ Það liggur hér fyrir kjörbréf Halldórs Blöndals.

Ég leyfi mér að biðja kjörbréfanefnd að taka til starfa strax og ég fresta þingfundi í 5 mínútur. — [Fundarhlé.]