22.11.1977
Sameinað þing: 21. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 765 í B-deild Alþingistíðinda. (541)
314. mál, laun forstjóra ríkisfyrirtækja
Lúðvík Jósepsson:
Herra forseti. Ég get í rauninni fallið frá því að taka hér til máls, vegna þess að hæstv. iðnrh. hefur að mínum dómi brugðist hér rétt við. Ég vildi bara að það lægi hér alveg skýrt fyrir, að auðvitað hvílir eftir reglum, sem hafa gilt á Alþ., ákveðin skylda á hverju ráðuneyti fyrir sig að upplýsa Alþ. um það sem hægt er að upplýsa varðandi þýðingarmikil mál sem flokkast undir viðkomandi rn. Þar er spurningin ekki sú, hvort viðkomandi rn. hefur í öllum greinum með málið að gera. Þegar t.d. fyrir nokkrum dögum var svarað fsp. frá mér hér á Alþ. um það, hvað liði starfsmannafjölda í sparisjóðum landsins, þá er mér vel kunnugt um að viðskrh. hafði ekki ráðið þá starfsmenn. En hann svaraði. Og þannig hefur þetta verið í öllum mögulegum greinum. Mér er vel kunnugt um að samkvæmt lögum er það bankaráð Seðlabankans sem ákveður launakjör starfsmanna bankans. En eigi síður fáum við hér svör við slíkum fyrirspurnum og varðandi Landsvirkjun o.s.frv. En járnblendiverksmiðjan og kísilgúrverksmiðjan flokkast undir iðnrn., og nú hefur hæstv. ráðh. lofað að veita hér upplýsingar um þessi atriði eða afla þeirra, og ég uni við það. Hitt fannst mér mjög alvarlegt, ef ekki ætti að veita Alþ. upplýsingar um þetta atriði, því að það gæti greinilega dregið dilk á eftir sér.