23.11.1977
Efri deild: 17. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 809 í B-deild Alþingistíðinda. (565)
91. mál, matvælarannsóknir ríkisins
Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð út af aths. hv. 2. þm. Vestf. Ég tel að Matvælaeftirlit ríkisins komi ekki til greina sem heiti á þessari stofnun, vegna þess að ég lagði á það mikla áherslu að matvælaeftirlitið er í höndum heilbrigðisnefnda sveitarfélaganna undir yfirumsjón Heilbrigðiseftirlits ríkisins skv. lögum um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit. Ég benti aftur á að þessi stofnun, Matvælarannsóknir ríkisins, yrði fyrst og fremst þjónustustofnun fyrir þessa aðila, sveitarfélögin og matvælaeftirlitið og Heilbrigðiseftirlit ríkisins, til þess að auðvelda þeim allt eftirlit með matvælum. Rannsóknir þessarar stofnunar verða svo að segja eingöngu sýnisrannsóknir vegna Heilbrigðiseftirlitsins, eins og ég gat um í minni framsöguræðu. Þess vegna tel ég að starfssvið þessarar stofnunar sé afmarkað við það, að það skuli annast matvæla-, efna- og örverufræðilegar rannsóknir á hvers konar matvælum og neysluvörum vegna heilbrigðiseftirlits í landinu. En það brýtur ekkert í bága við þær rannsóknir sem fara fram í öðrum stofnunum á matvælum, því þetta er fyrst og fremst þjónustustofnun fyrir heilbrrn. og Heilbrigðiseftirlit ríkisins. Það má því ekki breyta að mínum dómi nafninu í þessa átt. Hitt getur alltaf verið matsatriði hvort þetta heiti sé það eina rétta, en að mjög vandlega yfirveguðu máli komumst við í heilbr: og trmrn. að þeirri niðurstöðu að kalla þetta frv.: Frv. til l. um Matvælarannsóknir ríkisins.