28.11.1977
Efri deild: 18. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 853 í B-deild Alþingistíðinda. (588)

35. mál, alþjóðasamningur um ræðissamband

Frsm. (Ingi Tryggvason):

Herra forseti. Allshn. hefur rætt frv. til l. um aðild Íslands að alþjóðasamningi um ræðissamband, og varð n. sammála um að mæla með frv. óbreyttu. Einn nm., Oddur Ólafsson, var fjarverandi við afgreiðslu málsins. Ég tel ekki ástæðu til þess að fjölyrða um þetta mál. Það hefur verið gerð grein fyrir því í framsögu á sínum tíma. Niðurstaða n. varð sú sem ég hef greint frá.